Guðmundur Hrafn Arngrímsson, formaður Samtaka leigjenda á Íslandi, segir samstarfssáttmála nýs borgarstjórnarmeirihluta vera blauta og þunga tusku í andlit leigjenda.
Guðmundur Hrafn skrifaði pistil um málið á vef Vísis í dag.
„Hið velhafandi eignafólk sem er í forsvari fyrir nýja meirihlutann hefur nú komið sér saman um áherslur fyrir næsta kjörtímabil, sem útlistað er í pastellitum í fjögur þúsund orðum, en þar er að finna sitthvað um hunda og jafnvel hesta og malbik, en ekki orð um leigjendur. Það hlýtur að vera einhversskonar met í ófyrirleitni,“ segir Guðmundur Hrafn meðal annars í pistli sínum.
Að sögn Guðmundar Hrafns búa leigjendur í Reykjavík við eina verstu stöðu sem fyrirfinnist í Evrópu, „þar sem markviss og heimatilbúinn framboðsskortur geri leigusölum kleift að nýta sér þann hóp til þess að skapa auð.“
Guðmundur Hrafn segir stóran hluta þeirra sem mynda nýjan meirihluta í Reykjavík bera mikla ábyrgð á því skelfingarástandi sem ríkir en þráist að gangast við henni.
„Leigjendur í Reykjavík gera hinsvegar þá kröfu til nýs meirihluta að lausnamiðuð forgangsröðun fyrir leigumarkaðinn verði í öndvegi og að verkefnalisti hans taki mið af því að unið verði ofan af sveltistefnu gagnvart leigjendum,“ segir Guðmundur Hrafn jafnframt og bætir við að leigjendur hafni þeirri vanrækslu sem þeir hafa þurft að líða undanfarin átta ár.
Hægt er að lesa pistil Guðmundar Hrafns í heild sinni hér.