Maður nýrra tíma nefnist ævisaga Guðmundar H. Garðarssonar sem er nýkomin út. Björn Jón Bragason skráði sögu Guðmundar og ferst það vel úr hendi. Guðmundur er einn þeirra manna sem hafa komið órtúlega mörgu í verk á starfsævi sinni án þess að vera mjög áberandi. Það er því gleðilegt að saga hans hafi verið sögð. Það kemur á óvart hve víða hann hefur komið við sögu og látið gott af sér leiða.
Guðmundur H. Garðarsson var formaður VR í 23 ár. Hann opnaði félagið með þeim árangri að VR varð og er enn fjölmennasta og öflugasta launþegafélag landsins. Í formannstíð Guðmundar varð VR stórveldi innan verkalýðshreyfingarinnar. Verslunarmenn voru ekki aðilar að ASÍ en Guðmundur og félagar hans sóttu það fast að komast inn í ASÍ en pólitískar ástæður réðu því að það reyndist torsótt. En hafðist með harðri baráttu og eftirfylgni. Guðmundur var fyrsti hægrimaðurinn sem tók sæti í miðstjórn ASÍ. Hann er einnig fyrsti háskólamenntaði Íslendingurinn sem varð formaður í verkalýðsfélagi og miðstjórnarmaður í ASÍ. Guðmundur stóð ekki einn í þessari baráttu. Í bókinni gerir hann mikið úr hlut félaga sinna og bandamanna í forystu verslunarmanna. Má þar nefna Björn Þórhallsson og Magnús L. Sveinsson sem voru miklir vinir hans og öflugir félagar.
Þáttur Guðmundar H. Garðarssonar varðandi uppbyggingu lífeyrissjóðakerfisins á Íslandi er mjög stór. Hann áttaði sig fljótt á mikilvægi lífeyrissjóða fyrir framtíð Íslands og lagði mikið af mörkum í upphafi þegar fáir höfðu skilning á mikilvægi sjóðanna. Hann átti sæti í stjórn Lífeyrissjóðs verslunarmanna um áratuga skeið, oft formaður eða varaformaður. Þar átti hann afar farsælt samstarf við fulltrúa atvinnulífsins, ekki síst þá Hjört Jónsson, Jóhann J. Ólafsson og Víglund Þorsteinsson. Samstarf þeirra og annarra lagði grunn að því stórveldi sem Lífeyrissjóður verslunarmanna er.
Guðmundur starfaði hjá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna í 40 ár og gegndi starfi fjölmiðlafulltrúa ásamt öðrum trúnaðarstörfum fyrir SH. Í starfi sínu kynntist hann högum atvinnulífsins mjög vel. Það kom að góðu gagni þegar hann var kjörinn til setu á Alþingi árið 1974. Hann var þingmaður eða varaþingmaður til ársins 1991 og vann ötullega að mörgum framfaramálum í þinginu. Munaði þar mest um þátt hans í lausn landhelgisdeilunnar. Einnig hafði hann forystu í umræðum um lífeyrismál og mikilvæg mál sem snéru að vinnumarkaðnum. Á þessum árum þótti mikill styrkur af því að verkalýðsleiðtogar og atvinnurekendur ættu sæti á Alþingi. Það er liðin tíð.
Í bókinni segir frá mörgu áhugaverðu sem fram fór að tjaldabaki stjórnmálanna á þessum árum en mikil átök voru þá bæði innan Sjálfstæðisflokksins og milli fylkinga á Alþingi. Guðmundur kemur einnig við sögu þegar bankakerfið á Íslandi var stokkað upp en hann átti sæti í bankaráðum Verslunarbankans og síðar Íslandsbanka. Guðmundur greinir frá þeim átökum sem hann tók þátt í vegna sameiningar fjögurra banka árið 1990 og einnig þegar Íslandsbanki og FBA voru sameinaðir árið 2000. Það eru forvitnilegar frásagnir.
Birni Jóni Bragasyni hefur tekist afar vel að segjaáhugaverða sögu Guðmundar H. Garðarssonar á lipran og skemmtilegan hátt.