Maðurinn sem talið er að hafi fallið í Ölfusá að kveldi jóladags er nú talinn af. Leit verður engu að síður haldið áfram næstu daga en dregið verður úr umfangi hennar frá því sem mest var um helgina.
Maðurinn hét Guðmundur Geir Sveinsson og var fæddur 13. apríl 1974. Hann var til heimilis að Kringlumýri 4 á Selfossi og var ókvæntur og barnlaus.
Eftirlifandi faðir hans og bræður hafa óskað eftir því að koma á framfæri einlægum þökkum til allra þeirra björgunarsveitarmanna og annarra sem lagt hafa lið við leitina, segir í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi.