„Ég tel að forseti Íslands hafi algjörlega brugðist í sínu starfi og ég dreg víglínuna við sölu og uppgjöf á okkar auðlindum og mér finnst hann ekki hafa staðið sig og sérstaklega ekki í orkupakka þrjú,“ sagði Guðmundur Franklín Jónsson, sem býður sig fram til forseta gegn sitjandi forseta Guðna Th. Jóhannessyni, í Víglínunni í dag.
„Ég kalla það að selja auðlindirnar þegar við erum búin að gefa veiðileyfi á þær,“ sagði Guðmundur þegar Heimir Már þáttastjórnandi benti honum á að ekki væri búið að selja orkuauðlindina úr landi.
Guðmundur sagðist þá vilja beita málskotsrétti forsetans í ríkari mæli. „Hann á að nota sparlega. Hann á eingöngu að nota þegar djúp gjá myndast milli þings og þjóðar,“ sagði Guðmundur. Þannig vill hann sem forseti gegna hlutverki öryggisventils fyrir þjóðina gagnvart ákvörðunum þingsins.
Guðmundur kvaðst þá bjartsýnn á sigur í komandi kosningum, sem verða eftir tæpar þrjár vikur: „Ég geri mér vonir um að sigra. Öðruvísi væri ég ekki að þessu,“ sagði hann.