„Alkóhólismi er skelfilegur sjúkdómur sem ég hef leynt og ljóst barist við í áratugi. Með misgóðum meðulum. Oftar en ekki með ágætum meðulum þó, en þá tekið þær remedíur af hálfum hug, eða algjöru hugleysi. En nú er svo komið kæru vinir, þið sem sem fátt hafið vitað um þetta ástand, og svo þið hin sem hafið þjáðst óbærilega vegna drykkjusýki minnar, að nú er nóg komið; nóg bergt.“
Þetta segir skáldið og pistlahöfundurinn vinsæli hjá Fréttablaðinu, Guðmundur Brynjólfsson á Facebook.. Hann greinir frá því að hann ætli nú í fyrsta sinn að berjast við þennan óvin, sem Bakkus er af alvöru. Hann heldur áfram:
„ ... þennan óvætt sem ég hef svo oft kallað yfir alla þá sem ég elska mest og fara í því skyni í fulla meðferð hjá SÁÁ, - meðferð sem hefst við innlögn á sjúkrahúsið Vog í fyrramálið. Og mun sú meðferð standa eins lengi og fólki á þeim bæ, síður en mér, þurfa þykir.“
Þeir smávægilegu áverkar sem ég hef veit sjálfum mér með vopnum Bakkusar eru djöfulleg tilræði við ósegjanlega margt fólk sem ég elska. Lygahvískur Bakkusar að mér hefur í gegnum tíðina reynst slælegar herferðir að sálarlífi þeirra sem ég ann mest og hafa þrátt fyrir allt haldið tryggið við mig og hafa reynst mér bestir ráðgjafar í lífinu.
Dans minn við vínguðinn hefur líklega aldrei verið annað en sverðdans manns sem aldrei kunni sverðdans og hefði þar á ofan aldrei átt að eiga magnaðra vopn en smjörhníf.
Guðmundur segir einnig á öðrum stað:
„Ég elska of marga og hef sært of marga af nákvæmlega þeim ástvinum til þess að geta heimilað alkóhólismanum að menga mitt fólk enn frekar í gegnum mig. Eitra mig og mína.“