Talsmaður hluta landeigenda að Seljanesi við Ingólfsfjörð segir að stór partur vegaframkvæmda, sem ráðast á í vegna Hvalárvirkjunar, sé á einkalandi fjölskyldu hans. Hann segir landeigendur íhuga að fara með málið lengra og leita réttar síns. Undirbúningur vegna framkvæmda við virkjunina hefst á mánudag. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindarmála hefur til bráðabirgða hafnað kröfum landeiganda og umhverfisverndarsamtaka um stöðvun framkvæmda við fyrirhugaða Hvalárvirkjun í Ófeigsfirði. Því mun undirbúningur framkvæmda hefjast á mánudaginn.
Ítarlega er fjallað um málið á Vísi.
Talsmaður hluta landeiganda að Seljanesi við Ingólfsfjörð segir vonbrigði að framkvæmdir eigi að hefjast áður en efnismeðferð kæranna liggur fyrir.
Upplýsingafulltrúi Vesturverks segir að þær framkvæmdir sem farið verði íá næstunni séu minniháttar og afturkræfar.
Guðmundur er þó ósammála Birnu og segir framkvæmdirnar þvert á móti óafturkræfar.
„Allt tal um afturkræfni er náttúrulega bara algjört bull og því verður að vísa til föðurhúsanna,“ sagði Guðmundur Arngrímsson, talsmaður landeiganda að Seljanesi við Ingólfsfjörð.
Þetta er aðeins brot úr frétt Vísis sem fjallar ítarlega um málið, sjá frétt hér.