Sjálfstæðisflokkurinn ekki krabbamein eða bandalag barnaníðinga - linnulausar árásir og hótanir

„Þetta uppátæki Svanhildar Hólm - að sækja um stöðu útvarpsstjóra - sýnir okkur hið furðulega samband Sjálfstæðismanna við Ríkisútvarpið.“

Þetta segir Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur og þingmaður Samfylkingarinnar. Á öðrum stað segir hann að Sjálfstæðisflokkinn sé hvorki krabbamein í þjóðlífinu né bandalag barnaníðinga, heldur „bara fólk í næsta húsi. Þá beinir þingmaðurinn spjótum sínum að Svanhildi Hólm Valsdóttur og segir hana ekki vera réttu manneskjuna til að gegna starfi útvarpsstjóra.

„Það segir sig eiginlega sjálft,“ segir Guðmundur Andri og bætir við að manneskja sem hafi unnið sem aðstoðarkona fyrir Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra sé ekki  trúverðugur fulltrúi stofnunar sem skipti mál fyrir þjóðina að sé sjálfstæð og sterk og eigi ekki að vera í þjónustuhlutverki fyrir ríkisstjórnir hverju sinni. Um Sjálfstæðisflokkinn og Ríkisútvarpið segir Guðmundur Andri:

„Annars vegar standa þeir í linnulausum árásum á stofnunina, með hótunum og hlutdrægnibrigslum gagnvart hverjum þeim sem ekki hefur svarið trúnaðareiða í Valhöll – láta eins og það sé sérstakt keppikefli allra sem þarna starfa að ráðast á Sjálfstæðisflokkinn – og hins vegar telja þeir sig geta gengið þarna inn og út að vild og tekið sér þær stöður sem þá fýsir hverju sinni.“

Þá spyr Guðmundur Andri að lokum:

En meðal annarra orða: þarf ekki góðan ritstjóra sem kann til verka á Moggann?