Guðmundur Andri Thorsson, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur farið fram á að Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, komi fram fyrir Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og útskýri afskipti ráðuneytis af ráðningu Þorvaldar Gylfasonar prófessors sem ritstjóra norræns fræðitímarits um hagfræði.
Greint var frá því í dag að fjármála- og efnahagsráðuneytið hefði lagst gegn því að Þorvaldur, sem er prófessor í hagfræði, yrði ráðinn ritstjóri norræna fræðatímaritsins Nordic Economic Policy Review.
Þótti of pólitískur
Starfsmaður ráðuneytisins hafi á sínum tíma komið þeim skilaboðum til fjármálaráðuneyta á Norðurlöndunum og til Norrænu ráðherranefndarinnar að ráðuneytið gæti ekki stutt það að Þorvaldur yrði ráðinn. Ástæða þess var að hann væri of pólitískt virkur og enn formaður stjórnmálaafls, sem reyndist vera rangt.
„Dæmið af ofsóknum Sjálfstæðismanna á hendur Þorvaldi Gylfasyni sýnir í hnotskurn þann vanda sem við er að etja í opinberri umræðu hér á landi, jafnt í fjölmiðlum sem í akademíu,“ sagði Guðmundur Andri um málið fyrr í dag.
Studdust við útelta Wikipedia grein
Í svar ráðuneytisins við fyrirspurn Kjarnans kom fram að stuðst hafi verið við úrelta Wikipedia-síðu um Þorvald Gylfason þegar rangfærslur um stjórnmálaþátttöku Þorvaldar voru útlistaðar.
Þá var enn fremur beðist velvirðingar á téðum rangfærslum en enn hefur ekki borist svar um hver ber ábyrgð á þeirri ákvörðun að leggjast gegn ráðningu hans. Stjórnmálaþátttaka fræðimanna ætti ekki að koma í veg fyrir ráðningu í fræðistörf að mati ráðuneytisins.
„Ekki eru til neinar reglur um að stjórnmálaþátttaka íslenskra fræðimanna eigi að hafa áhrif á það hvort þeir komi til álita í fræðastörf, hvorki á samnorrænum vettvangi né annars staðar.“