Guðlaugur þór: „til hvers í ósköpunum var þetta málþóf eiginlega?!“

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra veltir því fyrir sér hvaða tilgangi málþóf þingmanna Miðflokksins vegna þriðja orkupakkans hafi þjónað. Komist hefur verið að samkomulagi um þinglok og hluti af því samkomulagi er að orkupakkinn verði tekinn fyrir samkvæmt umsaminni málsmeðferð áður en haustþing verður sett.

Guðlaugur Þór hefur ásamt Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, ferða­mála-, iðn­að­ar-, nýsköp­unar og dóms­málaráðherra og Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, ritara Sjálfstæðisflokksins, verið einn ötulasti talsmaður þess að innleiða þriðja orkupakkann.

Honum er ekki skemmt þar sem og segir Miðflokkinn hafa fallið frá öllum sínum helstu kröfum. Á Facebook-síðu sinni segir Guðlaugur Þór:

„Eftir að hafa staðið í ræðupúlti Alþingis í vel á annað hundrað klukkustundir hefur Miðflokkurinn samið um að atkvæðagreiðsla um 3. orkupakkann fari fram 2. september. Miðflokkurinn hefur þar með fallið frá kröfum um [að] málinu verði frestað fram á næsta þing, hann hefur fallið frá kröfum um að Alþingi skipi sérstakan starfshóp til að fara yfir málið að nýju og hann hefur fallist á að ljúka umræðunni á tveimur dögum. Til hvers í ósköpunum var þetta málþóf eiginlega?!“

Engin sérfræðinganefnd

Auk þess verður engin sérfræðinganefnd með fulltrúum allra flokka skipuð til að fara yfir þriðja orkupakkann, en Miðflokkurinn getur þó skipað sína eigin.

Í drögum að samkomulagi um þinglok sem var lagt fyrir alla þingflokka undir lok síðustu viku reyndist ákvæðið um sérfræðinganefnd með fulltrúum allra flokka vera bitbein hluta þingflokks Sjálfstæðisflokksins og því náðist ekki að semja um þinglok. Eftir að þetta ákvæði var fellt út náðist loks samkomulag um þinglok í gær og mun þingstörfum líklega ljúka í lok þessarar viku.