Guðlaugur þór stunginn í bakið

„Ég vil ekki vera gleðispillir, en það er öllum ljóst sem til þekkja að formaður Sjálfstæðisflokksins og flokkseigendaklíkan stungu Guðlaug Þór hressilega í bakið með framboði gegn honum í starf ritara flokksins,“ skrifar Sveinn Andri Sveinsson lögmaður á eigin fésbók. Sveinn Andri þykir hafa tengingar inn í flokkinn og þykja ummæli hans áhugaverð.

Í færsku sinni vitnar hann til þeirrar ákvörðunar Guðlaugs Þórs að stíga til hliðar eftir að Áslaug Arna bauð sig fram til ritaraembættis flokksins sem er þriðja valdamesta embætti flokksins.

„Guðlaugur hefði haft Áslaugu Örnu undir í kosningu um ritara, en bæði sigur og tap hefðu veikt stöðu hans innan flokksins. Guðlaugur vatt sér undan þessu þaulskipulagða hnífslagi á einu augabragði með því að draga framboð sitt til baka og hleypa þannig að ungri konu í forystu flokksins,“ skrifar Sveinn Andri.

Hann nefnir skýringu á þessari „atlögu“ sem hann metur sem svo gagnvart Guðlaugi Þór: „ Guðlaugur Þór er enn hataður af ráðandi öflum innan flokksins fyrir að hafa velt Birni Bjarnasyni úr stalli, sem af einhverjum óskiljanlegum ástæðum var álitinn vonarstjarna. Hann stóð þessa atlögu af sér og gott betur; hann stendur mun sterkari á eftir. Þeir sem reyna að stinga aðra í bakið í pólitík, verða að kunna að beita hnífum.“

Sjálfur skrifaði Guðlaugur Þór á eigin fésbók í gær: \"Ég hef notið þess út í ystu æsar að gegna embætti ritara Sjálfstæðisflokksins. Markmið mitt hefur verið að styrkja innra starf flokksins, sérstaklega þar sem við höfum verið veikust fyrir - hjá ungu fólki og konum. Ræða mín í dag gekk að stærstum hluta út á mikilvægi þess að styðja ungt og kraftmikið fólk til raunverulegra áhrifa innan flokksins. Framboð Áslaugar Örnu kom mér á óvart en ég er sannfærður um að það sé einmitt það sem flokkurinn þarf. Þess vegna styð hana heilshugar til þess að gegna embættinu og er sannfærður um að það muni styrkja flokkinn. Þar af leiðandi stíg ég til hliðar með bros á vör. Ég vil ekki vera maður sem hangir á embættum eða vegtyllum til þess eins að svala eigin metnaði. Við erum öll í sama liði og stillum upp til sigurs. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ég hlakka til að vinna með þér.\"

Bjarni Bene­dikts­son var end­ur­kjör­inn formaður Sjálf­stæðis­flokks­ins á lands­fundi áðan með 753 at­kvæði eða 96% gildra at­kvæða. Ólöf Nor­dal  var kjör­in vara­formaður flokks­ins með 771 at­kvæði af 816 auk þess sem Áslaug fékk mjög góða kosningu til ritara.