Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, kom í morgun á framfæri mótmælum íslenskra stjórnvalda við tilskipun Bandaríkjaforseta um bann við komu flóttafólks og borgara sjö ríkja til Bandaríkjanna. Þetta gerði Guðlaugur Þór á fundi með Benjamin Ziff, aðstoðarráðherra í utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna, sem staddur er hér á landi.
Gerði ráðherra meðal annars grein fyrir þeim afleiðingum sem bannið hefði hérlendis á íslenska ríkisborgara með tvöfalt ríkisfang sem eiga uppruna sinn að rekja til þeirra ríkja sem bannið nær til.
Utanríkisráðherra kom einnig á framfæri mótmælum við tilskipun Bandaríkjaforseta um að ekki megi veita fé til samtaka eða stofnana sem veita upplýsingar um fóstureyðingar eða veita aðgang að öruggum fóstureyðingum erlendis.
„Aðgengi að öruggum fóstureyðingum er mikilvægt mannréttinda- og heilbrigðismál og því veldur sú tilskipun Bandaríkjaforseta sömuleiðis miklum vonbrigðum,\" segir Guðlaugur Þór.