Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra hefur kært flokkssystur sína Áslaugu Örn Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra fyrir að brjóta reglur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Prófkjörið hefst á morgun og eru þau bæði í fyrsta sæti.
Kæran var send stjórn Varðar og óskað eftir að hún bærist til yfirkjörstjórnar.
„Í ljós hefur komið að Magnús Sigurbjörnsson, bróðir Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, frambjóðanda í prófkjörinu og kosningastjóri, hafði aðgang að flokksskrá Sjálfstæðisflokksins, það er nákvæmar og stöðugt uppfærðar upplýsingar um flokksmenn, í aðdraganda prófkjörsins og eftir að framboðsfrestur í prófkjörinu rann út,“ segir í kærunni.
Skrifstofa Sjálfstæðisflokksins hafði ekkert aðhafst í málinu fyrr en umboðsmaður framboðsins hafi óskað eftir upplýsingum síðastliðinn mánudag um hverjir hefðu aðgang að flokksskránni og hvort Magnús Sigurbjörnsson hefði aðgang að henni. Eftir athugun hafi starfsmaður á skrifstofu flokksins staðfest að Magnús hefði aðgang að flokksskránni. Síðan er sagt að staðfest hafi verið að aðgangi Magnúsar hafi verið lokað á þriðjudaginn.
„Þessar upplýsingar eru sérstaklega áhugaverðar í ljósi ábendinga sem borist hafa, meðal annars um að nýskráðir Sjálfstæðismenn hafi fengið símtal frá framboði Áslaugar Örnu þar sem þeir eru boðnir velkomnir í flokkinn. Rennir það stoðum undir þá ályktun að framboð Áslaugar Örnu hafa haft aðgang að þessum nákvæmu persónuupplýsingum og nýtt þær í þágu framboðsins,“ segir í kærunni.