Guðlaugur þór fær engin svör

Guðlaugur Þór Þórðarson, varaformaður fjárlaganefndar hefur enn ekki fengið umbeðnar útskýringar Bankasýslu ríkisins á sölu Arion banka á hlut í Símanum til útvalinna, en hún hefur mjög verið gagnrýnd undanfarna daga.

Bankasýslan fer með 13% hlut ríksins í bankanum og finnst Guðlaugi Þór það furðu sæta að hún vilji ekki útskýra gjörning bankans fyrir þingi og þjóð. Hann segir söluaðferðina vera þvert á yfirlýsta eigendastefnu ríkisins þar sem gagnsæi og almennar leikreglur eigi að vera leiðarstef í öllu starfi, en salan á hlut Símans hafi verið þvert á þessu stefnu og skapi tortryggni sem þjóðin þurfi síst af öllu á að halda í uppbyggingunni eftir hrun.

Hann segir að fjárlaganefnd muni áfram leitast við að fá svör frá bankasýslu ríkisins við brýnum spurningum um söluna á hlut Arion banka í Símanum.

Formaður Sjálfstæðisflokksins hefur sagt sölu Arion á hlutnum í Símanum vera ámælisverða. Hann segir ólíðandi að fáir útvaldir búi að sérkjörum á sölu Arion banka í Símanum. Engin þolinmæði sé fyrir slíku í þjóðfélaginu. Málið sé klúður.