„Fyrir Íslendinga sem þjóð svo háðri sjávarútvegi og auðlindum hafsins verður ekki samið um rétt Íslands til hvalveiða. Sá réttur er óumsemjanlegur. Alþjóðalög og sáttmála ber að virða og ekki er unnt að véfengja rétt Íslands til að nýta lifandi sjávarauðlindir á borð við hval með ábyrgum og sjálfbærum hætti – líkt og raunin er,“ segir í svari ráðherra. Bent er á að fyrirliggjandi reglugerð og kvótaúthlutun til hvalveiða renni sitt skeið á enda síðar á þessu ári. Hagfræðistofnun Háskóla Íslands vinni nú að mati á þjóðhagslegum áhrifum hvalveiða, auk þess sem Hafrannsóknastofnun meti fæðuþörf hvala og vægi hennar í lífríki sjávar hér við land. Niðurstöður þeirrar vinnu, auk annarra þátta, muni nýtast við frekari ákvarðanir er lúta að stefnu Íslands í hvalveiðum.
Nánar á
https://stundin.is/grein/7397/gudlaugur-segir-islendinga-hafa-oumsemjanlegan-rett-til-hvalveida/