Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og varaformaður fjárlaganefndar fer svo að segja hörðum orðum um húsnæðisfrumvörp Eyglóar Harðardóttur, húsnæðismálaráðherra í grein sem hann birtir í Morgunblaðinu í dag.
Fáheyrt er að stjórnarþingmaður fari með jafn áberandi hætti gegn sitjandi ráðherra og Guðlaugur Þór gerir í grein sinni, en ekki einasta segir hann að markmið frumvarpanna muni ekki ná fram að ganga heldur sé engan veginn vitað hvaða áhrif þau muni hafa á opinber útgjöld. Hann segir frumvörpin merkja \"mikið inngrip\" hins opinbera í húsnæðismálum sem hæglega geti snúist upp í andhverfu sína, valdið verðbólgu með tilheyrandi hækkun lána, en fátt sé verra fyrir húsnæðiskaupendur og leigjendur en verðbólga og óstöðugleiki.
Grein Guðlaugs Þórs er enn staðfesting þess að stjórnarflokkarnir tala ekki einu máli í húsnæðismálum - og djúp gjá virðist vera á milli flokkanna í þeim efnum, rétt eins og augljóst er af umræðu flokkanna um eignarhald á bönkum, svo og um verðtrygginguna.
Efasemdir Guðlaugs Þórs um húsnæðisútspil framsóknarráðherrans snúa ekki sýst að því hvort hjálpin rati til þeirra sem helst þurfa á henni að halda. Hann geti ekki lesið annað úr frumvörpunum en að fleiri með hærri tekjur fái rétt til niðurgreiðslu á leigu heldur en þeir lægstlaunuðu. Ekki hafi verið skoðað hvaða áhrif þetta hafi á einstaka tekjuhópa og hvort fátækragildrur myndist. Þá sé hætta á að stuðningur til handa leigjendum lendi í vasa leigusala og óljóst er hver framtíð Íbúðalánasjóðs verði.
Loks bendir hann á að frumvörp ráðherrans séu þvert á ráðleggingar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem hafi lagt til einföldun á bótakerfinu hér á landi, en frumvörpin þýði þvert á móti flóknara kerfi.