Gerði nánast út af við kennarann sinn: „ég hafði miklar áhyggjur þegar hann sveif niður, blóðlaus“

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra er gestur Sigmundar Ernis í viðtalsþættinum Mannamáli á Hringbraut í kvöld. Þar fer hann um víðan völl í einlægu samtali. Hann ræðir í fyrsta sinn á opinberum vettvangi um þá staðreynd að hann er ættleiddur og vitanlega er einnig rætt um pólitík.

Auk þess er aðeins farið yfir menntaveg Guðlaugs, en ýmislegt gekk á þegar hann gekk í Menntaskólann á Akureyri fyrir rúmum 30 árum síðan. Ekki er hægt að segja allar sögurnar en Guðlaugur ræðir eitt minnisstætt atvik, þar sem hann var nánast búinn að drepa einn kennarann sinn, Gunnar Frímannsson.

„Það var algjört slys og hann átti það alls ekki skilið. Yndislegur maður og ég hugsa með hlýju til allra kennaranna í menntaskólanum, þetta var allt saman öndvegisfólk. Ég met það seinna hvað það var gott að fá svona góða kennara. Ég held að þeir hefðu alveg getað fengið duglegri nemanda en þann sem hér situr. Þetta var mjög gott að fá að vera þarna og algjört heillaspor, að mamma skyldi senda mig í menntaskólann,“ segir hann.

Guðlaugur lýsir aðdragandanum svo: „Þá var það bara þannig að hann fór að sýna okkur gömlu vistirnar uppi á háalofti og ég fékk þessa stórkostlegu hugmynd, sem eftir á að hyggja var kannski ekkert rosalega góð, að fara inn í skáp og bað vini mína að banka því ég ætlaði að bregða aðeins bekkjarsystrum mínum. Svona var maður nú þroskaður.“

Hann lét svo til skarar skríða. „Svo leið og beið þarna og stutta sagan er þessi: Gunnar Frímannsson er að segja frá mjög sorglegu atriði, að maður hafi hengt sig fyrir framan skápinn, þegar ég stekk út. Ég hafði miklar áhyggjur þegar hann sveif niður, blóðlaus, ég man ekki hvort það var Stjáni eða Halli Dean [Nelson] sem greip hann niður við gólfið. Hann sagði ekkert. Við hlógum náttúrulega eins og bjánar og loksins þegar hann sagði eitthvað sagði hann „Það er sérkennilegur húmor í þessum bekk,“ sem má alveg færa rök fyrir að hafi verið rétt.“

Aðrir kennarar spurðu hvað þeir hefðu eiginlega gert. „Næsti kennari sem kom til okkar, af því að það voru löngu frímínútur, sagði: „Hvað gerðuð þið eiginlega við Gunnar Frímannsson? Hann er hrókur alls fagnaðar í löngu frímínútum en hann sat úti í horni og sagði ekki eitt aukatekið orð.“ Þetta lifir eitthvað því ég hitti öðlinginn, skólameistarann Jón Má Héðinsson, fyrir nokkrum dögum og hann fór að spyrja mig út í þetta,“ segir Guðlaugur.

Mannamál er á dagskrá Hringbrautar klukkan 20:00 í kvöld.