Guðjón vill snúa aftur í boltann

Guðjón Þórðarson, fyrrverandi landsliðsþjálfari, segist gjarna vilja snúa aftur í þjálfun. Hann var gestur í Þjóðbraut í morgun.

Guðjón rifjaði upp þá leiki sem hann stýrði landsliðinu gegn Frökkum, eitt eitt jafntefli á Laugadalsvelli og einstaklega skemmtilegan og spennandi leik í París, þar Frakkar unnu að lokum 3- 2.

Guðjón segir íslenska landsliðið  spila árangursríkan og fínan fótbolta. „Það er ekkert gamaldags við mörkin sem liðið hefur skorað,“ sagði Guðjón og benti á að Lars Lagerback sé kominn af léttasta skeiði.

Guðjón rifjaði upp nokkur söguleg atvik. Meðal annars þegar Ingólfur Hannesson, íþróttafréttamaður hjá RÚV, rauk á hann og kyssti.