Guðjón þórðar ræðir aldursfordóma

Sumardagskrá Hringbrautar hefst í þessari viku með fjölda nýrra þátta og endursýningum annarra kunnra þátta frá því fyrr á árinu sem hafa vakið hvað mesta athygli af efni stöðvarinnar.

Meðal nýrra þátta í sumar má nefna garðyrkjuþáttinn Matjurtir í umsjá Auðar Rafnsdóttur, tískuþáttinn Herrahornið í umsjón Sigmundar Ernis, atvinnulífsþáttinn Fólk og frumkvæði sem Sölvi Tryggvason annast, fasteignaþáttinn Afsal í umsjón Rakelar Sveinsdóttur, veiðiþáttinn Við árbakkann með Gunnari Bender, heimildarþætti um Vesturfarana og þá verða áfram frumsýndir nýir þættir af Grillspaðanum í umsjón Sigurðar K. Kolbeinssonar og menningarþættinum Lífsins list í umsjá Sirrýjar, svo og myndir úr smiðju Páls Steingrímssonar. Síðar í sumar byrja svo fjörlegir golfþættir í umsjón Eyjólfs Kristjánssonar.

Valdir og umtalaðir þættir úr vetrardagskrá Hringbrautar verða endursýndir í sumar, þar á meðal Mannamál Sigmundar Ernis, en í tilefni af 35 ára kosningarafmæli Vigdísar Finnbogadóttur verður byrjað að endursýna viðtalsþættina tvo við hana sem vöktu þjóðaraathygli á fyrstu vikum Hringbrautar í loftinu, en af öðrum endursýndum þáttum í sumar má nefna Atvinnulífið sem Sigurður Kolbeinsson stýrir, Heimsljós Sólveigar Ólafsdóttur, Kvennaráð Bjarkar Eiðsdóttur og Fólk með Sirrý.

Fyrsti þátturinn í endursýningu Fólks með Sirrý er þátturinn þar sem Guðjón Þórðarson og Sigurjóna Sverrisdóttir ræddu hispurslaust um erfiðleika þess að fá vinnu við hæfi eftir fimmtugt, en sá þáttur vakti mikla athygli á sínum tíma fyrir opna umræðu um þessi mál sem legið hefur í láginni og lítt verið rædd á opinberum vettvangi.

Þátturinn er á dagskrá klukkan 20:00 í kvöld.

Fyrri viðtalsþátturinn við Vigdísi Finnbogadóttur er svo á dagskrá á sama tíma annaðkvöld.