Einn okkar allra fremsti tónlistarmaður, Páll Óskar Hjálmtýsson, sagði frá reynslu sinni á RÚV af sundlaugarferðum á níunda áratugnum í þættinum Svona fólk. Sem unglingur kvaðst Páll hafa rekist reglulega á eldri menn í gufubaðinu í Vesturbæjarlaug. Þangað voru þeir komnir í leit að kynferðislegri fullnægingu. Páll ákvað eftir eina dramatíska heimsókn, þá 16 ára gamall, að verða aldrei eins og þeir. Þar var haft eftir Páli:
„ ... verð ég vitni að því, að það er ákaflega mikið af eldri mönnum sem venja komur sínar þangað í örvæntingarfullri leit að kynferðislegri fullnægingu, vegna þess að þetta er annað hvort eitthvað sem þeir hafa neitað sér um eða ekki upplifað af öðrum orsökum, alla sín hunds og kattartíð. Það var þá sem ég sagði, nei. ég ætla ekki að gera sjálfum mér þann grikk að enda svona þegar ég verð sextugur.“
Guðbjörn Guðbjörnsson stjórnsýslufræðingur, óperusöngvari, yfirtollvörður og fyrrverandi Sjálfstæðismaður gagnrýnir Pál Óskar og sakar hann um fordóma í garð samkynhneigðra. Guðbjörn segir:
„Allir sem komnir eru á minn aldur eða í kringum sextugt og þaðan af eldri vita hversu fordómafullt samfélagið var á sínum tíma í garð samkynhneigðra. Sem betur fer búum við núna í umhverfi, þar sem samkynhneigð er eitthvað sem flest fólk tekur sem sjálfsögðum hlut.“ Þá bætir Guðbjörn við: „Mér finnst það nú ekki fallegt eða stórmannlegt að tala niður til annarra homma - lífs eða liðna - og upphefja sjálfan sig, þegar kemur að fólki sem þurfti að fela kynhneigð sína alla hunds- og kattartíð, af því að í samfélaginu var nákvæmlega enginn skilningur fyrir tvíkynhneigð og fordómar grasserandi.“
Nokkrar umræður hafa átt sér stað á fésbókarvegg Guðbjörns en þar segir Reynir Sigurðsson að stutt sé í fordóma hjá þeim sem skrifa. Guðbjörn svarar:
„Páll Óskar, sem virðist hafa fordóma gagnvart eldri kynslóðum homma, sem lifðu ekki við sömu aðstæður og hann sjálfur. Persónulega hef ég enga fordóma gagnvart hommum. Vann með mikið af þeim í óperu- og söngheiminum og í söngskólum á liðnum 35 árum.“
Reynir segir þá að Guðbjörn hljóti að sjá að Páll sé að benda á hve staða þessara manna hafi verið ömurleg og það hafi gert það að verkum að hann hafi ákveðið að gera eitthvað í málinu í stað þess að lifa í skömm og þögn. Reynir segir: „Fáir hafa unnið jafn vel gegn fordómum og Páll Óskar og það þarf einbeittan brotavilja til að halda því fram að hann hafi talað niður til þessara manna. Hann var aðeins að lýsa tíðarandanum. Þú hins vegar telur þér sæmandi að tala niður til Páls Óskars eins ötulasta baráttumanns hinsegin fólks.“
Guðbjörn segir Pál tala af yfirlæti um \"örvæntingarfulla menn\" sem byrgi inn í sér tilfinningar sínar ...
„ ... og að \"verða eins og ÞESSIR menn\" og hann hafi ekki viljað \"enda svona sextugur\", því hann sé sjálfum \"sér samkvæmur\", en væntanlega ekki ÞESSIR menn. Guðbjörn bætir við að lokum:
„Væntanlega voru þá allir hommarnir sem voru svívirtir og lamdir og flúðu Ísland vegna fordóma og ofbeldis bara aumingjar.“