Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, nýr framkvæmdastjóri Marels á Íslandi, er einn gesta Jóns G. í kvöld. Marel er verðmætasta fyrirtækið í kauphöllinni, Nasdaq Iceland, og markaðsvirði þess núna er 282 milljarðar króna. Guðbjörg, sem er með meistaragráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands, hefur víðtæka reynslu af stjórnun, vöruþróun og nýsköpun en undanfarin tvö ár hefur hún stýrt vöruþróunarstarfsemi félagsins á Íslandi og Bretlandi með góðum árangri. Hún hefur starfað hjá Marel frá árinu 2011. Þá leiddi hún eitt stærsta vöruþróunarverkefni Marels undanfarin ár, FleXicut vatnskurðarlausnina, sem hefur umbylt hvítfiskvinnslu á heimsvísu. Skemmtilegt viðtal. Þátturinn á dagskrá kl. 20:30.
Guðbjörg stýrir marel á íslandi
Fleiri fréttir
Nýjast