Útgerðarfélög og tengir aðilar eiga nú 96% af hlutafé í Morgunblaðinu eftir því sem fram kemur í 9. tölublaði Stundarinnar sem kom út í gær.
Langstærsti hluthafinn er Guðbjörg Matthíasardóttir, útgerðarkona í Eyjum, með um 45% eignarhluta samkvæmt blaðinu. Ítök Samherja undir stjórn Þorsteins Más Baldvinssonar og tengdra félaga hans eru einnig gríðarleg.
Stundin leggur saman heildarkvóta þeirra útgerðarfélaga sem standa að útgáfu Morgnblaðsins. Er samanlögð tala 36,5% alls kvóta á landinu samkvæmt útreikningum blaðsins sem ígildir því að meira en þriðji hver þorskur er á bak við hlutafé Morgunblaðsins eins og segir í fyrirsögn Stundarinnar.
Stærsti einstaki hlutur er í eigu Kaldbaks, 18,43%. Forsvarsmaður Kaldbaks er Þorsteinn Már.