Guðbjartur Hannesson, þingmaður Samfylkingarinnar, fyrrverandi ráðherra og forseti Alþingis er látinn. Banameinið er krabbamein.
Guðbjartur varð 65 ára gamall, hann greindist með meinið fyrir um þremur mánuðum.
Hann starfaði lengst af í skólakerfinu sem kennari og skólastjóri uns hann tók sæti á Alþingi árið 2007. Hann gegndi ráðherradómi í tvígang.
Ein síðasta baráttan sem Guðbjartur stóð fyrir var stuðningur hans við að Ísland tæki vel á móti flóttamönnum. Í Kastljósi var rætt við hann fyrir skömmu þegar hann komst ekki að þingsetningu vegna sjúkdómsins.
Eftirlifandi eiginkona Guðbjarts er Sigrún Ásmundsdóttir, en þau eignuðust tvær dætur.