Guðbjartur Hannesson, fyrrverandi velferðarráðherra og þingmaður Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi greindist með illvígt krabbamein í sumar og verður frá þingstörfum í haust á meðan hann berst við sjúkdóm sinn.
Guðbjartur sendi fjölskyldu sinni og vinum skilaboð sem lesa má á fésbókarsíðu hans, en þar gerir hann grein fyrir veikindum sínum nú í upphafi haustþings, en Alþingi, sem verið hefur vinnustaður Guðbjarts frá því árið 2007, er sett í dag.
Færsla Guðbjarts er eftirfarandi:
\"Kæra fjölskylda, vinir, félagar, samstarfsfólk og allir Fb félagar og vinir.
Fljótt skipast veður í lofti og ljóst er að ég mæti ekki til Alþingis á þingsetningardaginn á morgun né fyrstu vikur þingsins.
Ástæðan er að um miðjan júlí greindist ég með krabbamein og er að slást við það þessa dagana og vikurnar.
Ég treysti á að Alþingi standi sig í erfiðum störfum framundan, leggi áherslu á afkomu þeirra sem minnst hafa og gæti hags barna, öryrkja og eldri borgara. Þá leggi þingið áherslu á aukið samstarf stjórnar- og stjórnarandstöðu, en ég minni á að samstarf þýðir að leita saman að bestu lausnum, en ekki að meirihlutinn einn ráði.
Við höfum mörg dæmi frá síðasta þingi þar sem þingmál voru stórbætt með umræðu í þingsal, vinnu í nefndum og harðri gagnrýni einstaklinga og hópa. Það er verkefni allra þingmanna að tryggja bestu niðurstöðuna hverju sinni og lýðræðislega aðkomu almennings að málum. Stjórnarskrárbreytingar eru þar gríðarlega mikilvægar.
Ég treysti á að Alþingi ræki skyldur sínar við íbúa þessa lands en jafnframt og ekki síður axli með þjóðinni þá samábyrgð sem við höfum sem þjóð meðal þjóða í alþjóðlegu samstarfi, þróunarsamvinnu, móttöku flóttamanna, hælisleitenda o.fl. Ísland er rík þjóð sem getur skipt þjóðaauðnum miklu jafnar og betur og tryggt öllum góða afkomu. Vilji er allt sem til þarf.
Bestu kveðjur og óskir um gott samstarf og árangursrík þingstörf.\"