Skáldsaga Guðbergs Bergssonar, Tómas Jónsson – metsölubók, er tilnefnd til bandarísku bókaverðlaunanna Best Translated Book Awards í flokki skáldsagna.
Tómas Jónsson – metsölubók kom út í Bandaríkjunum sumarið 2017. Í dómi Kirkus Reviews sem frétt Rúv vitnar í, segir að skáldsaga Guðbergs minni um margt á Finnegans Wake og Ulysses eftir James Joyce. „Þó það sé lítið um að vera á yfirborðinu í frásögn Guðbergs þá kraumar bergkvika undir.“
Fimmtíu ár voru liðin í fyrra frá útgáfu bókar Guðbergs. Hún er þýdd af Lytton Smith.
Verðlaunin verða veitt 31. maí. Bæði höfundar og þýðendur þeirra verka sem verðlaunin hljóta fá í sinn hlut verðlaunafé að upphæð 5000 dollara frá Amazon Literary Partnership sjóðnum.