Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður Flokks fólksins, fór hörðum orðum um jólabónusa til handa veiku fólki og eldri borgurum í aðsendri grein sem birtist í Morgunblaðinu fyrir helgi.
„Þá er það ekkert annað en gróft fjárhagslegt ofbeldi að segjast borga veiku fólki og eldri borgurum jólabónus upp á um 44.500 krónur og skatta og skerða hann síðan í spað, þannig að ekkert er eftir,“ skrifar þingmaðurinn og heldur áfram:
„Jú, auðvitað hjá sumum er tapið eftir og það hjá þeim sem verst fara út úr þessari furðulegu jólagjöf. Þetta sama skatta- og skerðingaplat er einnig gert við orlofsuppbótina að sumri til. Það væri hægt að borga þennan jólabónus skatta- og skerðingalausan í um 50 til 100 ár til öryrkja og eldri borgar fyrir tapið hjá Íbúðalánsjóði.“
Guðmundur vísar næst í tap Íbúðalánasjóðs upp á 150 til 300 milljarða og spyr hvort það sé ekki kostnaður fyrir ríkissjóð einnig, líkt og Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, kallaði leiðréttinguna á skerðingu lífeyrislauna eldri borgara hjá Tryggingastofnun þegar málið var rætt á Alþingi.
Gagnrýnir hann harðlega að „hver einasta króna sem þessi ríkisstjórn þarf að borga til öryrkja og eldri borgara“ sé flokkuð sem kostnaður á meðan tapið hjá Íbúðalánasjóði myndi duga í tæp sex ár fyrir skatta og skerðingarleysi á lífeyrislaunum upp á 300 þúsund á mánuði fyrir hópinn hjá Tryggingastofnun.
„Þingsályktunartillaga Flokks fólksins um að öryrkjar fengju 300.000 krónur skatta- og skerðingarlaust var felld á Alþingi rétt fyrir jól. Kostaði of mikið og þetta væri brot á jafnræðisreglunni og með henni væri verið að mismuna atvinnulausum og námsmönnum. Hvar er þessi jöfnuður þegar lágmarkslaun eru 300.000 á mánuði, atvinnulausir fá 280.000 á mánuði og flestir öryrkjar fá 250.000 krónur fyrir skatt?“
Guðmundur setur þetta svo í samhengi við kostnað ríkisins vegna þingmanna:
„Þá er auðvitað farið eftir jafnræðisreglunni þegar við þingmenn fáum 181.000 krónur í jólabónus, atvinnulausir 80.000 krónur og öryrkjar 44.500 krónur. Fullkominn jöfnuður þar? Það er furðulegt að það sé alltaf kostnaðartal sem fer af stað þegar á að borga öryrkjum, eldri borgurum og atvinnulausum hækkun á þeirra lífeyri. Lífeyrislaunaþegar hjá Tryggingastofnun ríkisins eru þeir einu sem ekki hafa fengið leiðréttingu á sínum lífeyri aftur í tíma og það frá hruninu, eins og allir aðrir hafa fengið. Er það jöfnuður?“
Guðmundur ingi um skerðingar á jólabónus veiks fólks og eldri borgara: „gróft fjárhagslegt ofbeldi“
Fleiri fréttir
Nýjast