Guð, hvað er þessi maður að gera hér?

Vegna frétta þar sem segir að tjón hafi verið unnið á menningarsetri múslima hér á landi sem og ýmsum viðbrögðum sem orðið hafa við ummælum forseta Íslands í gær um múslima, hefur einn kunnasti menningargagnrýnandi þjóðarinnar, Jón Viðar, birt tveggja ára gamla frétt Rúv um leiðtoga menningarsetursins.

Á eigin fésbók segir Jón Viðar: „Í ljósi frétta og umræðna síðustu dægra tel ég rétt að rifja upp þessa frétt á vef RÚV fyrir um tveimur árum. Þau hljóð sem heyrðust frá þessu svokallaða \"menningarsetri múslima\" nú á dögunum í kjölfar Parísarmorðanna voru ekki beinlínis í þeim anda sem kemur fram í þessu viðtali. Enda voru þá aðrir tímar. 
PS. Og ef einhvern langar til að saka mig um að kynda undir \"islamófóbíu\" með þessari birtingu bið ég þann hinn sama vinsamlegast að bregðast á málefnalegan og kurteislegan hátt við þeim ummælum sem klerkurinn viðhefur hér um samkynhneigða og konur. Annars eyði ég ummælum um leið og ég sé þau.“

í frétt Rúv kom fram að múslimaklerkurinn Ahmad Seddeq hjá menningarsetri múslima hafi fyrir tveimur árum sagt að samkynhneigð ýti undir rán á börnum. Framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands sagði þá að ummæli Ahmad gætu varðað við hegningarlög.

Í viðtali við Spegilinn á Rúv hafði Ahmad einnig sagt að konur eigi að hylja hár sitt því annað geti leitt til framhjáhalds. Af sömu ástæðum vildi hann ekki taka í hönd fréttakonu Spegilsins. Þá kemur fram að stærsti styrktaraðili Menningarseturs múslima sé Al-Risalah en samtök eru með aðsetur í Sádí-Arabíu.

Sérfræðingar töldu ummælin í ætt við hatursáróður. Þá hefur einnig verið til þess tekið að Ahmad tók ekki í hönd Agnesar biskups.

Nokkur viðbrögð hafa nú þegar orðið við færslu Jóns Viðars. Spyr ein kona og á þar við Ahmad: „Guð minn góður, hvað er þessi maður að gera hér?\"