Sigurður G Guðjónsson lögfræðingur skrifar á facebook síðu sína:
Í dag eru 9 ár frà því ríkisstjórn Geirs H Haarde lýsti yfir þjóðnýtingu Glitnis banka hf. Ekkert varð af því og viku seinna bað ráðherrann Guð að blessa Ísland áður en hann mælti fyrir frumvarpi til neyðarlaga. Þau lög gerðu Fjármálaeftirlitinu mögulegt að setja stjórnir banka af og stofna nýja banka á grundvelli þeirra sem komnir voru í strand.
Fjármálaeftirlitið stofnaði þrjá nýja banka Nýja Landsbanka Íslands hf. Nýja Kaupþing Banka hf. og Nýja Glitni banka hf. Ríkið átti alla þrjá þar til fjármàlaràðherrann í stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur ákvað að einkavæð tvo og gefa starfsmönnum hins þriðja hlut í þeim á móti ríkinu. Gjöfin var skilyrt því að starfsmennirnir næðu sem mestu inn af lánum, sem flutt höfðu verið frá Landsbanka Íslands hf til hins nýja.
Með þessum gerðum sló ríkisstjórn Jóhönnu gjald borg um bankana sem réðust með fullum þunga á einstaklinga og fyrirtæki og kröfðust fullra efnda à lànum sem þeir höfðu fengið fyrir slikk.
Rétt að hafa þetta í huga núna.