Grunur um viðurstyggilegan brotavilja

„Samkvæmt því sem við heyrum leikur grunur á viðurstyggilegum brotavilja í þessum nauðgunarmálum,“ segir heimild úr nemendahópi HR í samtali við Hringbraut.

Tveir menn eru grunaðir um aðild að tveimur nauðgunum og eru þolendur í báðum tilvikum nemendur HR. Starfsmaður hótelsins Reykjavík Marína hefur eftir því sem fram kom í hádegisfréttum Bylgjunnar verið sendur í leyfi. Grunur  lögreglu beinist að því að hann hafi ásamt nema við Háskólann í Reykjavík framið nauðgun á konu. Þá sé neminn grunaður um aðra hrottafengna nauðgun nokkru fyrr.

Fréttablaðið segir að báðar nauðganirnar hafi orðið í október með níu daga millibili. Í öðru tilvikinu komu nemar HR saman á Hótel Marina, þar sem annar meintra gerenda starfaði.

Lögregla gefur engar upplýsingar að svo stöddu aðrar en að málin séu í rannsókn.

Sömu sögu er að segja um Háskólann í Reykjavík.

Heimildarmaður Hringbrautar úr röðum nemenda HR segir að hinum grunaða nauðgara hafi verið vikið úr skólanum. Kvisast hafi meðal nemenda að hann hafi notað nauðgundarlyf eða aðra ólyfjan til að koma vilja sínum fram.

Að sögn heimildar Hringbrautar eru nemendur skólans mjög slegnir.