Svissneska lögreglan gerði húsleit í höfuðstöðvum Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA í Zürich í morgun og voru sex stjórnendur FIFA handteknir á hóteli í sömu borg fyrr í morgun en þeir eru grunaðir um aðild að fjársvikamáli.
Um er að ræða rannsókn af hálfu bandarískra yfirvalda og eru stjórnendur FIFA sakaðir um að hafa þegið tugi milljóna Bandaríkjadala í mútur undanfarna áratugi. Lögregluaðgerðun getur varla komið á verri tíma fyrir Alþjóðaknattspyrnusambandið og ekki síst forseta þess, Sepp Blatter en hann sækist eftir endurkjöri á aðalfundi FIFA í Sviss á föstudag.
Meðal annars er rannsakað hvort peningaþvætti og fjársvik tengist því hvar Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu verður haldin árið 2018 og 2022, en þau árin verður hún í Rússlandi og Katar.
Meðal hinna handteknu er varaforseti FIFA, Jeffrey Webb sem fer fyrir Ameríkudeild sambandsins.