Grunur leikur á um að 19 mánaða drengur sé smitaður af mislingum. Fimm hafa greinst með mislinga á landinu á undanförnum vikum, en sá fyrsti var ferðamaður sem var smitaður af mislingum og kom til landsins um miðjan febrúar. Drengurinn var bólusettur fyrir þremur vikum við 18 mánaða aldur, um svipað leyti og fyrsta smit greindist, og því möguleiki á að hann hafi smitast skömmu áður.
Í tilkynningu frá sóttvarnalækni segir að drengurinn hafi veikst með mislingalíkum útbrotum á mánudag en hafi verið einkennalaus að öðru leyti. Hann var ekki í leikskóla en var í heimapössun hjá foreldrum og ættingjum og því ekki til staðar saga um samgang við einstakling sem smitaður var af mislingum svo vitað sé.
Einnig er tekið fram að hugsanlegt sé að um útbrot af völdum bólusetningar sé að ræða, en þær geta valdið mislingalíkum útbrotum í fimm prósent tilfella. Litlar líkur séu á smiti til annarra í slíkum tilfellum.
Drengurinn verður hafður í einangrun í nokkra daga til viðbótar, en mislingasmitaðir hætta að smita fjórum til fimm dögum eftir að útbrot koma fram.
Þá eru sýni til skoðunar hjá veirudeild Landspítala og niðurstöðu að vænta síðar í dag.