Grunur um hryðjuverk í brussel

Óttast er að margir séu látnir og fjölmargir slasaðir eftir að tvær sprengjur sprungu á Zaventem-flugvellinum í Brussel í morgun.
 
Ekki liggur fyrir hverhir standa að voðaverkunum en uppnám er í Belgíu. Lögreglan í Belgíu hafði nýverið hendur í hári Salah Abdeslam sem stóð á  bakvið hryðjuverkaárásirnar í París á síðasta ári.
 
Eftir því sem fram kemur hjá Rúv var innskráning í flug Icelandair frá flugvellinum ekki hafin.
Önnur sprengjan sprakk á  Maalbeek-lestarstöðinni í neðanjarðarlestakerfi Brussel. Lestarstöðin er nærri höfuðstöðvum ESB. 
Rúv er með beina erlenda fréttaútsendingu frá Brussel vegna hins meinta hryðjuverks.
 
Uppfært kl. 11.14: Samkvæmt erlendum fjölmiðlum er tala látinna nú komin upp í 25.