Grunur um brot: druslubók sett á salt

Aðstandendur Druslugöngunnar hafa hætt við að gefa út ljósmyndabók um síðustu göngu hópsins eftir að grunur vaknaði um að maður sem kom að gerð bókarinnar væri kynferðisbrotamaður.

Fréttablaðið greinir frá þessu í dag, en þar kemur fram að ábending hafi borist um ofbeldisverk mannsins eftir að búið var að prenta um eitt þúsund eintök af bókinni. Skipuleggjendur göngunnar segja að ekki komi til greina að gefa þessi \"óhreinu eintök\" út í nafni átaksins, sem er einmitt að vekja fólk til umhugsunar um alvarleika kynferðisofbeldis, en vonast til að geta gefið út sambærilega bók eftir gönguna í ár.

Ljóst er að tjónið af völdum þessarar ákvörðunar hleypur á nokkrum milljónum króna, en það er bókaforlagið Salka sem situr uppi mep það tjón.