Grunuð lögga leyst frá störfum

Lög­reglumaður­inn sem var hand­tek­inn fyr­ir ára­mót vegna gruns um óeðli­leg sam­skipti við brota­menn hef­ur verið leyst­ur frá störf­um tíma­bundið.

Þetta staðfest­ir Sig­ríður Björk Guðjóns­dótt­ir, lög­reglu­stjóri í Reykja­vík, við mbl.is.

Í frétt mbl.is segir hún að mann­in­um hafi verið veitt lausn frá embætti um stund­ar­sak­ir, en mál hans verði rann­sakað af nefnd sér­fróðra manna sam­kvæmt lög­um um rétt­indi og skyld­ur op­in­berra starfs­manna. Tek­ur nefnd­in af­stöðu til þess hvort rétt sé að veita lausn að fullu eða láta viðkom­andi taka aft­ur við embætti sínu.

Nefnd­in sem um ræðir er svo­kölluð 27. grein­ar nefnd.

27. grein segir:  Nú hef­ur emb­ætt­is­manni verið veitt lausn um stund­ar­sak­ir fyr­ir meint­ar mis­fell­ur í starfi og skal mál hans þá þegar rann­sakað af nefnd sér­fróðra manna svo að upp­lýst verði hvort rétt er að veita hon­um lausn að fullu eða láta hann taka aft­ur við embætti sínu. Stjórn­valdi eða starfs­manni er þó ætíð heim­ilt að vísa máli til rann­sókn­ar [lög­reglu].1)

Í nefnd, sem rann­saka skal mál emb­ætt­is­manns skv. 1. mgr., skulu eiga sæti þrír menn, sér­fróðir um stjórn­sýslu. [Ráðherra]2) skip­ar nefnd­ina, þar af formann henn­ar og vara­mann hans til fjög­urra ára í senn. Aðrir nefnd­ar­menn taka sæti í nefnd­inni í hvert sinn og skal ann­ar þeirra til­nefnd­ur af þeim ráðherra sem í hlut á en hinn af sam­tök­um rík­is­starfs­manna sam­eig­in­lega. Ef sam­tök­in koma sér ekki sam­an skal [ráðherra]2) skipa nefnd­ar­mann­inn án til­nefn­ing­ar. Nefnd­in skal láta í ljós rök­stutt álit á því hvort rétt hafi verið að víkja emb­ætt­is­manni frá störf­um um stund­ar­sak­ir.