Enda þótt fyrstu niðurstöður vísindamanna um mengun jökla af völdum eldgossins í Holuhrauni sýni umtalsverða mengun er bráðnun snævarins ekki talin valda alvarlegri sýringu á yfirborðs- og grunnvatni.
Þetta segir í tilkynningu frá Almannavörnum ríkisins í morgun en þar kemur fram að undanfarnar vikur hafi staðið yfir vinna við mælingar á snjókjörnum sem safnað hafi verið á Vatnajökli og á hálendinu norðaustan hans í mars síðastliðnum: "Tilgangurinn var að mæla styrk og ákomu efna í úrkomu sem féll veturinn 2014 til 2015, frá september til loka mars, og meta hvort og þá hve mikið ákoman hefur orðið fyrir áhrifum af gosinu í Holuhrauni sem stóð frá 31. ágúst til 27. febrúar 2015. Í heildina var 31 snjókjarna safnað, þar af 29 kjarnar sem endurspegla meðalefnasamsetningu vetrarákomunnar og tveir kjarnar sem voru hlutaðir niður til að sjá þróun ákomunnar í tíma og rúmi," segir í tilkynningunni.
Þessar fyrstu niðurstöður sýni að vetrarúrkoma á Austurlandi og Vatnajökli er menguð af völdum gossins í Bárðarbungu, en bráðnun snævarins muni líklega sem fyrr segir ekki valda alvarlegri sýringu á yfirborðs- eða grunnvatni. Styrkur málma í snjósýnunum verði svo mældur á næstu vikum.