Grunnskylda að tryggja öryggi

Þjóðhöfðingi Íslands Guðni Th. Jóhannesson forseti sagði að nú reyni á réttarríki hvarvetna um aðgerðir gegn hryðjuverkamönnum án þess að mannnréttindi séu fótum troðin.

Hryðjuverk hafa átt sér stað á Stóra-Bretlandi þrisvar sinnum með stuttu millibili og ekki er laust við skynja megi örvæntingu fólks.

Forsetinn sagði það verða að vera þannig að borgarar á Vesturlöndum finni að stjórnvöld séu að rækja þá grunnskyldu sína að tryggja öryggi fólks.

Forsetinn sagði að ný reynir á réttarríki hvarvetna og hefur gert það nauðsynlegt að finna þær leiðir til þess að mæta þessari ógn án þess að sjálfsögð mannréttindi séu fótum troðin.

Og án þessa að heilir hópar fólks sem hafa ekkert til saka unnið verði álitnir grunsamlegir fyrir það eitt að aðhyllast íslama eða fyrir það eitt að vera dökkir á hörund.

Þannig má ekki bregðast við sagði Guðni Th. Jóhannesson forseti í viðtalinu á RÚV.

En ný reynir á sagði forsetinn að ráðamenn og yfirmenn öryggismála lögreglu og hers erlendis finni þær leiðir sem duga sagði forsetinn. \"Því við þetta verður ekki unað\" bætti hann við.

rtá

Nánar www.ruv.is