Grunnmenntun á að vera ókeypis

Börn eiga ekki að finna fyrir því hvort foreldrar hafi mikið eða lítið á milli handanna í skólanum. Þetta segir framkvæmdastjóri Barnaheilla en samtökin hvetja stjórnvöld til að útvega skólabörnum öll nauðsynleg gögn, án endurgjalds.
 

Samtökin Barnaheill Save the Children á Íslandi vilja að 31. grein grunnskólalaga verði breytt og tekið verði fyrir alla gjaldtöku af foreldrum barna í grunnskólum að því er fram kemur í frétt RÚV um málið í dag. Ríki og sveitarfélög eru hvött til að setja skýrar reglur um að óheimilt sé að krefja foreldra um innkaup á gögnum, greiðslu fyrir gögn sem nota á vegna skólagöngu barna eða fyrir aðra starfsemi á vegum skóla. 

\"Við viljum að barnasáttmálanum sé fylgt til hins ýtrasta enda er hann orðinn hluti af okkar lögum, frá því hann var lögfestur 2013. Í honum kemur fram að grunnmenntun eigi að vera án endurgjalds. Ef við ætlum að framfylgja því í raun á ekki að rukka foreldra fyrir aukaefni sem þau þurfa að kaupa inn fyrir börnin sín,“ segir Erna Reynisdóttir, framkvæmdastjóri samtakanna við RÚV. Hún segir að leggja þurfi af þann sið að senda innkaupalista út til foreldra í upphafi skólaárs.

\"Þetta getur auðvitað alveg skipt máli hjá fjölskyldum sem búa við þröngan kost. Ég tala nú ekki um ef börnin eru orðin fleiri en eitt og fleiri en tvö, þá fara jafnvel börnin að finna fyrir því. Það er það sem við erum helst að hugsa um, að börnin finni ekki fyrir því, hvort foreldrar hafi mikið á milli handanna eða lítið. Að öll börn njóti sama jafnræðis þegar kemur að skólagöngu,“ segir Erna ennfremur.