Einn einstaklingur sem ekki starfar innan lögreglunnar hefur réttarstöðu grunaðs manns í rannsókn héraðssaksóknara á meintri spillingu innan fíkniefnadeildar lögreglunnar.
Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í morgun, en þar segir að upphaf rannsóknarinnar megi rekja til lögreglufulltrúa sem hafi verið endurtekið færður til í starfi á síðasta ári eftir að kvartanir frá meirihluta fíkniefnadeildar höfðu borist inn á borð ríkislögreglustjóra. Honum hafi svo verið vikið frá störfum í janúar þegar formleg rannsókn héraðssakóknara á hendur honum hófst.
Að því er fram kemur í blaðinu hefur lögreglufulltrúinn í lengri tíma sætt ásökunum samstarfsmanna og almennings um óeðlileg samskipti við aðila í fíkniefnaheiminum, þar á meðal hinn grunaða, en hann er grunaður um að hafa lekið upplýsingum um störf lögreglu og þannig spillt rannsóknum og aðstoðað aðila í undirheimunum.
Einstaklingurinn sem grunaður er um að hafa aðkomu að fíkniefnaheiminum mun, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins, í yfirheyrslu hjá héraðssaksóknara hafa viðurkennt að lögreglufulltrúinn hafi að minnsta kosti einu sinni varað hann við því að lögreglan hygðist framkvæma húsleit í húsnæði sem hann hafði aðkomu að og grunur lék á að í væru fíkniefni.
Óljóst er hvort peningar hafi skipt um hendur en einstaklingurinn mun hafa veitt lögreglufulltrúanum upplýsingar um umsvif annarra manna í fíkniefnaheiminum gegn þessum viðvörunum, eins og segir í Fréttablaðinu í morgun.