Grunaður bankaræningi handtekinn

Seint í gærkvöld handtók lögregla mann sem grunaður er um bankarán í Landbankanum í Borgartúni í gær.

Handtkakan átti sér stað eftir að lögreglunni barst ábending frá almenningi í kjölfar myndbirtingar af mönnunum í fjölmiðlum.

Í tilkynningu frá lögreglu segir að meint vopn sem notuð hafi verið við ránið hafi fundist.  Hnífur hafi verið notaður sem og eftirlíking af skammbyssu.

Eftir því sem Hringbraut kemst næst gengur annar tveggja höfuðpaura ránsins enn laus en fleiri hafa verið yfirheyrðir, grunaðir um vitorð.