Hingað til lands hafa komið ferðamenn sem lögreglu grunar að hafi tengsl við hryðjuverkasamtök. För þeirra hefur ekki verið stöðvuð heldur er yfirvöldum í því landi sem fólkið ferðast til gert viðvart.
Þetta kemur fram í skýrslu Ríkislögreglustjóra um komu flóttafólks og aukið álag við landamæraeftirlit sem Fréttablaðið fjallar um í dag, en þar segir að ráðherraráð Evrópusambandsins hafi afráðið í sumar að innleiða almenna áhættuvísa við landamæravörslu. Þeir hafi nú verið teknir upp á Keflavíkurflugvelli. Samkvæmt þeim eiga landamæraverðir að vera á sérstöku varðbergi gagnvart fólki sem uppfyllir flokkun ESB í þessum efnum. Kemur fram í skýrslunni að nokkrum sinnum hafi vaknað grunur um að einstaklingur hafi tengsl við hryðjuverkastarfsemi, en sérstaklega sé horft til tengsla við hryðjuverkasamtökin ISIS þegar mál af þessu tagi séu skoðuð.
Að meðaltali fara fjórtán þúsund farþegar um Keflavíkurflugvöll daglega. Ólafur Helgi Kjartansson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, segir að skoðað sé hvort fólk þyki líklegt til að vera tengt hryðjuverkum. Svo sem hvaðan það er að koma, hvert það sé að fara, hvort það ferðist eitt eða hafi þekkt tengsl: \"Við höfum ákveðnar skyldur gagnvart öðrum ríkjum. Menn hafa sérstaklega verið að reyna að fylgjast með því hvort það sé verið að flytja fólk til ISIS-liða eða hvort fólk sé að koma frá þeim. Þá höfum við látið vita,“ segir Ólafur við blaðið.
Og hann bætir við: \"Við þurfum að passa að ganga ekki of nærri fólki sem hugsanlega er ekkert nema sakleysið. Þó að menn hafi einhvern tíma framið brot eða liggi undir grun þá er ekki hægt að grípa þá á meðan það hefur ekkert sannast á þá.“