Gróði kortafyrirtækja er geggjaður

Gylfi Magnússon, hagfræðingur veltir því fyrir sér á fésbók sinni af hverju kortafyrirtæki eru svona verðmæt, en fyrirtækin Borgun og Valitor hafa vægast sagt verið mikið í fjölmiðlum síðustu daga vegna verðmats á þeim.

Gylfi gegndi embætti efnahags- og viðskiptaráðherra fyrstu misseri vinstristjórnar Jóhönnu Sigurðardóttir. Hann gjörþekkir íslenskt viðskiptalíf, ekki síst sem háskólakennari - og veltir hér við steini: \"Einn flötur á þessu Borgunarmáli er alveg óræddur – hvers vegna eru krítarkortafyrirtæki svona verðmæt,\" spyr Gylfi á fésbókinni sinni og er skjótur til svars: \"Skýringin er einföld, þessi krítarkortabissniss er ótrúlega ábatasamur.“

Hann segir marga aðila koma að kortaviðskiptum, þar á meðal séu alþjóðleg kortafyrirtæki, færsluhirðar og bankar. Kostnaður neytenda sé gríðarlegur þar sem þessir aðilar fái nokkur prósent af veltu í hvert sinn sem kort sé notað: \"Það fer beint út í verðlag og rýrir því kaupmátt. Þetta er hrein geggjun. Fyrir utan veltutengdu tekjurnar greiða neytendur offjár í kortagjöld og vexti,\" segir Gylfi.

Mikið framfaraskref væri að fá alvöru samkeppni í kortageirann þar sem nútímatækni geri kleift að vera með mun ódýrari greiðslumiðlun en nú býðst.