Lögreglan varar göngufólk við grjóthruni í Esjunni þessa dagana. Því ættu þeir sem hyggjast skella sér á Esjuna í dag að fara að öllu með gát.
Á fréttavef ruv.is er greint frá því að vanur göngumaður hafi lent í hættu í fjallinu í gær þegar tveir stærðarinnar grjóthnullungar, á að giska hálft tonn hvor, hrundu úr fjallinu rétt fyrir ofan hann og rúlluðu niður göngustíginn í átt að Gunnarsskarði frá Steini. Ekki hefði þurft að spyrja að leikslokum hefði einhver lent í þessum hnullungum.
Þeim sem vilja engu að síður klífa Esjuna í dag er bent á að fara Einarsmýrina sem er styttri og brattari leiðin af þeim tveimur algengustu sem farnar eru á fjallið.