Grískir bankar lokaðir til 7. júlí

Stjórnvöld í Grikklandi afréðu um helgina að loka öllum bönkum í landinu til að forðast enn frekari óróa á fjármálamarkaði landsins, en um helgina voru biðraðir framan við alla banka landsins þar sem fólk reyndi að taka út peninga sína.

Grikkir eiga að standa skil á annað hundrað milljóna evra láni um mánaðamótin en eiga ekki fyrir því. Evrópski seðlabankinn heldur grísku bönkunum enn á floti með því að útvega þeim lausafé, en nú er orðið ljóst að það dugar ekki lengur nema með svo ströngum höftum að loka verður fjármálastofnunum fram yfir þjóðaratkvæðagreiðsluna 4. júlí, en þá eiga Grikkir að ákveða hvort þjóðin gengur að skilyrðum lánadrottna sinna um lengingu á lánum ríkisins eða ekki. Þá verður einnig tekin afstaða til evrunnar og veru í Evrópusambandinu, en Alexis Ssipras forsætisráðherra Grikklands hefur hvatt þjóð sína til að segja nei við lánadrottna en já við áframhaldni veru í ESB og myndsambandi þess.

Þótt almenningur í Grikklandi sé fremur hlynntur Evrópusambandinu og evrunni eru margir sammála Alexis Tsapris forsætisráðherra um að skilyrði lánadrottna séu of ströng og niðurlægjandi fyrir þjóðina. Það ríkir hins vegar ótti um framhaldið og því hafa verið langar biðraðir við hraðbanka landsins af hræðslu við að bankarnir tæmist eða höft verði sett á hversu mikið má taka út úr þeim.

Fjármálamarkaðir um allan heim leika á reiðiskjálfi vegna ástandsins í Grikklandi. FTSE 100-vísitalan lækkaði um meira 150 stig, eða um meira en 2 prósent, þegar markaðir í London opnuðu í morgun. Þá varð enn meiri lækkun á mörkuðum í Frakklandi og Þýskalandi, eða um 4 prósent. Hlutabréfaverð í evrópskum bönkum féll um allt að 10 prósent, að því er fram kemur í breskum fjölmiðlum.