Grínisti gantast með misritun vigdísar

 

 

41. sambandsþing Sambands ungra framsóknarmanna er fram undan á Akureyri.

Einn þingmanna flokksins, Vigdís Hauksdóttir, sendir skilaboð þar sem merkingin á sennilega að vera sú að hún komist ekki á þingið.

Halldór Högurður grínisti með meiru greip orðalag þingmannsins á lofti og birtir á facebook mynd af orðsendingu Vigdísar sem sést að ofan.

Vigdís \"afboðar forföll\". En virðist eigi að síður ekki ætla að mæta á þingið.

\"Landsins skarpasta fólk við stjórnvölinn,\" skrifar Halldór Högurður með myndinni.

Myndin fer nú sem eldur í sinu um Internetið . Telja sumir ómaklegt en aðrir rifja upp fyrri ummæli ýmis, svo sem þegar Vigdís sakaði fjármálaráðherra, Steingrím J. Sigfússon, um að stinga höfðinu í steininn.

Mismæli og misritanir Vigdísar hafa alloft áður orðið fréttaefni.