Hvað vilja Ástralir heyra í uppstandi? Brandara um kengúrur? Nei, segir Ari Eldjárn sem er á leið þangað niðureftir.
Ari ræddi við Lindu útflutt grín og hvernig spaug um Norðurlandabúa ganga í furðu margar þjóðir. MIÐ Ísland sem Ari er hluti af, ætlar svo að vinda sér uppúr Þjóðleikhúskjallaranum með sýninguna sína og leigja Háskólabíó í staðinn - flytja grínið úr kjallaranum og í miklu stærra sýningarrými enda ekki vanþörf á.
Eftir 55 uppseldar sýningar frá áramótum í Þjóðleikhúskjallaranum ætlar Mið-Ísland að ljúka vetrinum með bombu á stóra sviðinu í Háskólabíói. Ásamt Ara eru þetta þeir Bergur Ebbi, Björn Bragi, Dóri DNA og Jóhann Alfreð.
Annars vakti uppistand Ara á Edinborgarhátíðinni ytra fyrir skömmu aukna eftirspurn eftir honum svo nú er hann með erlendan umboðsmann og fer til London - og svo sem fyrr segir Ástralíu á eina helstu hátíðina í þessum bransa.
Ari var gestur Lindu á Þjóðbraut - fimmtudaginn 8.mars.