\"Þetta eru mikil vonbrigði. Það var búið að spá okkur góðu gengi í öllum helstu kvikmyndatímaritum frá því í sumar og maður var að sjálfsögðu að vona að það gengi eftir,“ segir Grímur Hákonarsonar leikstjóri í samtali við Hringbraut.
Talið var að Hrútar ættu góða möguleika á tilnefningu til óskarsverðlauna en myndin hefur farið sigurför um heiminn.
En hvað telur hann að skýri niðurstöðu akademíunnar vestra? Er listrænt gildi annað í Ameríku en Evrópu?
„Ég veit ekki hvað klikkaði, en við gerðum okkar besta til að vekja athygli á myndinni þarna úti. Ég fæ alltaf góð viðbrögð við myndinni allsstaðar sem ég kem.“
Grímur bætir við: „Þarna á listanum er mikið af seinni heimstyrjaldarmyndum og búningamyndum. Kannski var hún ekki nógu \"stór\" fyrir Kanann.\"
Grímur er ekki einn um vonbrigðin. Virtur blaðamaður á deadline.com segir um niðurstöðuna að það sé áfall að Hrútar hafi orðið út undan, \"something of a shocker to have been left out\".