Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa lónsins og formaður Samtaka atvinnulífsins sér fram á allt að 700 milljarða króna tekjur af ferðaþjónustunni á næstu árum, en allt stefnir í að erlent ferðafólk á Íslandi verði um tvær milljónir á ári innan tíðar.
Grímur var gestur Sigmundar Ernis í viðtalsþættinum Mannamáli á sunnudagskvöld og eðli málsins samkvæmt var mikið rætt um ferðaþjónustuna, tækifæri hennar og ógnanir. Grímur sagði i þættinum að Ísland væri ágætlega í stakk búið til að taka við fleiri ferðamönnum, en vissulega yrði að hlúa að helstu ferðamannastöðum og dreifa álaginu betur yfir árið og betur yfir landið. Það væri verkefni ferðaþjónustunnar, en einnig stjórnvalda sem verði að láta meira af mörkum til þessarar stærstu atvinnugreinar landsmanna sem aflaði nú meiri gjaldeyristekna en sjávarútvegur og áliðnaður samanlagt. Ríkisvaldið hefði stutt innviði og ívilnað í báðum þeim greinum - og ekki væri nema sjálfsagt mál að það styddi við ferðaþjónustuna með sama hætti og eldri atvinnugreinar; auknar tekjur ríkissjóðs af ferðaþjónustunni hlytu að skila sér í uppbyggingu téðra innviða.
Hann sló á ótta manna við að alltof margir ferðamenn væru að koma til landsins - og nefndi þar Írland sem dæmi; þangað kæmu á milli sex til átta milljónir ferðamanna á hverju ári án þess að það þætti nokkuð tiltökumál, en Írland væri vel að merkja minni eyja en Ísland. Aðeins Guinness-verksmiðjurnar einar og sér tækju á móti einni til hálfri annarri milljón ferðamanna á hverju ári.
En hér gilti auðvitað að allir stæðu sína plikt, ekki síst ríkisvaldið sem hefði mestan hag af þessu ævintýri öllu saman - og það ætti vitaskuld að haga sínum útgjöldum í samræmi við það ef það vildi veg greinarinnar sem mestan.
Viðtalið við Grím er hægt að nálgast í heild sinni hér en einnig í klippum inni á hringbraut.is.