Grímuklæddur prestur gekk á röðina og mataði kirkjugesti með oblátum

Landa­kots­kirkja braut á samkomubanni í annað sinn í dag þegar allt of margir voru komnir saman þar inni til messu á öðrum tímanum. RÚV greindi fyrst frá málinu en málið er nú í rannsókn lögreglu.

Yfir fimmtíu manns voru komnir saman við messu sem fór fram á pólsku í kirkjunni í dag.

Í upptöku frá messunni má sjá sóknarprestinn með grímu en hann gengur á milli kirkjugesta hver á fætum öðrum og færir þeim oblátu í munn.

Patrick Breen, staðgengill biskups kaþólsku kirkjunnar og sóknarprestur í Landakotskirkju sagði í samtali við Fréttablaðið í dag að nóg pláss væri í kirkjunni fyrir fimmtíu manns til að koma saman, þrátt að fyrir tíu manna samkomubann sé í gildi. Þá sagði hann að vel væri hægt að virða tveggja metra reglu og aðrar sóttvarnareglur þó svo að fleiri en tíu séu inni í kirkjunni samtímis. Svo virðist sem að presturinn í messunni hafi þó ekki verið á sama máli um að virða aðrar sóttvarnareglur, t.d. hvað varðar tveggja metra regluna og snertingu.