Grímuklæddir og vopnaðir einstaklingar mættu ekki á bjórkvöld menntaskólanema

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út laust eftir miðnætti í nótt vegna samkvæmis menntaskólanema á Seltjarnarnesi.

Vísir greinir frá því að nokkrir grímuklæddir einstaklingar hafi mætt á bjórkvöld nemanna og að lögreglan hafi sent fjölmennt lið á staðinn. Að sögn vitnis hafi þeir verið vopnaðir hnífum og talið sig eiga eitthvað óuppgert við einn einstakling á staðnum

Lögreglan var með mikill viðbúnað í miðbæ Reykjavíkur í gær eftir að skilaboð um mögulega hefndarárás vegna stunguárásarinnar á Bankastræti Club um síðustu helgi fóru á dreifingu manna á milli á samfélagsmiðlum í vikunni.

Í dagbók lögreglu kemur fram að mikill fjöldi ungs fólks undir tvítugu hafi verið að skemmta sér og töluverð ölvun hafi verið á staðnum. Samkvæmið hafi verið leyst upp sökum ungs aldurs fjölda gesta en þeir eru sagðir hafa verið á aldrinum 16 til 17 ára.

Ekki er greint frá grímuklæddum og vopnuðum gestum í pósti lögreglu en heimildir Vísis herma að lögreglu hafi tekist að skerast í leikinn áður en til alvarlegra átaka kom.

Nánar má lesa um málið á vef Fréttablaðsins.

Uppfært: Heimildir Vísis voru rangar. Engir gímuklæddir eða vopnaðir einstaklingar mættu í samkvæmið. Beðist er velvirðingar á þessu.