Grímstaðabóndinn er ríkasti bretinn

Jim Ratcliffe, sem á meirihlutann í Grímsstöðum á fjöllum og jarðir í Vopnafirði við gjöfular laxveiðiár, er ríkasti maður Bretlands samkvæmt árlegri úttekt breska blaðsins Sunday Times. Auðæfi hans eru nú metinn 21 milljarð punda eða tæpa þrjú þúsund milljarða.
 
Þetta kemur fram á fréttavef Ríkisútvarpsins sem vitnar í vef Guardian þar sem segir að Ratcliffe hafi stokkið úr 18. sæti listans í það fyrsta. Hann er efnaverkfræðingur og býr á sveitasetri nærri Beaulieu og á tvær ofursnekkjur, Hampshire  og Hampshire II. 

 

Hægt er að lesa ítarlega fréttaskýringu RÚV um Ratcliffe hér. Þar kemur meðal annars fram að hann sé mikið hraustmenni sem byrji daginn á því að hlaupa tíu kílómetra og vilji helst aldrei hlaupa einn því helst vill hann ræða um fótboltaliðið sem hann styður, Manchester United.