Ekki verður gefin út ákæra vegna meintra kynferðisbrota manns á sjötugsaldri gegn ungri konu, annars vegar í Grímsey og hins vegar í Reykjavík, sem kærð voru á síðasta ári.
Samkvæmt upplýsingum frá embætti ríkissaksóknara sem mbl.is greinir frá í dag var málið ekki talið líklegt til sakfellis og var það því fellt niður.
Konan kærði manninn síðla árs 2014 fyrir ítrekuð kynferðisbrot þegar hún var 14-17 ára gömul. Í opnuviðtali við Akureyri vikublað í janúar síðastliðnum sagði hún sögu sína.
Konan sagði í viðtalinu að hún hafi verið 14 ára þegar miðaldra fjölskylduvinur braut fyrst gegn henni. Hafi maðurinn nauðgað henni ítrekað allt þar til hún var 17 ára en þá hafi hún öðlast styrk til þess að segja honum að hætta. Sagði hún manninn hafa misnotað stöðu sína og traust sem hún bar til hans og að þessi misnotkun hafi valdið henni miklum andlegum erfiðleikum, þunglyndi og kvíða.
Málinu hafði verið vísað til ríkissaksóknara fyrr á árinu en embættið sendi það aftur til lögreglunnar til frekari rannsóknar á grunni nýrra upplýsinga. Lögregla tók nýja skýrslu af konunni áður en málið var sent aftur á borð ríkissaksóknara sem tók ákvörðun um að fella það niður í síðasta mánuði, að því er fram kemur á vefnum í dag.